Danski kúrinn....

Sælar

Fjör fjör og aftur fjör! Kristófer er kom í gær heim úr skólaferðalaginu. Hann var mjög kátur með það og var mikið fjör hjá þeim í sveitinni. Birgitta meikaði ekki að vera ein eftir með mér meðan Kristófer fór í ferðalagið og fór í tjellingaferð á kaffihús og bíó á mánudaginn með fleiri tjellum héðan úr götunni. Annars er mikið í gangi hér og mikið skemmtilegt framundan. Á morgun erum við að fara á skemmtun frá 17 - 21 í heilsdagsskólanum hjá Kristófer. Þar verður grillað og leikið sér í allskyns tækjum og auðvita verður léttvín og bjór fáanlegt á vægu verði, en ekki hvað. Á laugardagsmorguninn er svo von á Þíódore, en hann er á fundi í Svíþjóð á föstudag og ætlar að kíkja við hjá okkur eina nótt. Það verður nú síður en svo leiðinlegt. 

Ég var að koma af fótbolta æfingu sjitturinn hvað það er gaman. Mikil spenna er að byggjast upp hjá strákunum í boltanum fyrir Klakanum sem er um helgina.  Klakinn er knattspyrnumót íslenskra karlmanna búsettum á Norðurlöndum eins og stendur í lögum mótsins. Þetta er víst mikið fjör og er nokkuð ljóst að ég mæti næsta ár fyrst ég kemst ekki nú. 

 p.s. þakka öllum þeim fjölmörgu sem eru svona duglegir að kommenta! 

p.s.2 held að Kristófer  sé orðinn mikið betri í dönsku heldur en hann sýnir okkur. Bíðum spennt eftir opinberun á því svo hann geti farið að kenna okkurSmile 

Med venlig hilsen

Pjé 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið munið bara að fara vel yfir borðsiðina með Þíó ef þið ætlið e-ð með hann út :) Ekkert að þakka.

Siffa (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 21:07

2 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Greinilega mikið fjör & gaman þarna úti  Vildi samt að þið gætum verið hérna hjá okkur á klakanum norðan heiða á laugardaginn þegar að kallinn fagnar 30 árunum sínum en við hugsum hlýtt til ykkar & ég skal bara setja tertusneiðar í frystinn handa ykkur

Leiðinlegt að þú kemst ekki með á mótið núna  Eigið góða helgi elskurnar & knús & kossar á línuna

Dagbjört Pálsdóttir, 11.9.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pálmi Ólafur Theódórsson

Höfundur

Pálmi Ólafur Theódórsson
Pálmi Ólafur Theódórsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Titanic hvað..
  • Bátsmaður...
  • hugsa sér þeir sett heilt þjóðfélag á hausinn...
  • Mama Rosa
  • gaman í búðum...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 490

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband