19.8.2008 | 09:26
Skólagrill, golf, heimsóknir og
Sæl og bless
Nú erum nánast alveg búin að koma okkur fyrir og ábyggilega aðeins innan við tíu IKEA ferðir eftir. Dagarnir hér hafa verið ljúfir og veðrið fínt. Í gær fórum við í grillveislu með öllum bekknum hans Kristófers og foreldrum þeirra. Þar var mikið fjör þriggja tíma veisla og var fólk ekkert að hika við að fá sér öl og léttvín með matnum, þetta er Daninn. Ég er nú viss um að það færi allt á annan endann ef þetta yrði gert á Íslandinu góða. Pálmi fór í fyrsta skiptið í golf í Danmörku í gær og var það mikið fjör, árangurinn er ekki til umræðu. Í gær kíkti Egill í heimsókn á Dagmar sinni hún er nú orðin frekar ryðguð eitthvað spurning um að fara að yngja upp, ha Egill! Á morgun koma Ómar og Finnbogi í heimsókn og verða fram á sunnudag. Það verður svaka fjör og er mannskapurinn orðinn nokkuð spenntur. Í gær kom Kristófer heim og gladdi mömmu sína með stórri rottu í höndunum. Birgitta var nú allt annað en sátt og fleygði nokkrum vel völdum orðum að rottunni og eitthvað að Kristófer. Þegar allt kom til alls var þetta gæludýr hjá bekkjarsystur hans Kristófer og voru þau bara að leika við hana. Þessar mömmur....
Við erum búin bæta við og uppfæra einhverjar myndir í Kagså albúminu, endilega kíkið á það.
Hils på en pils!
Við
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:36 | Facebook
Um bloggið
Pálmi Ólafur Theódórsson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 727
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð nú bara að spyrja hvar þið fenguð þessa flottu grænu dvd hillur sem hanga hjá Kristófer, þetta er sko eitthvað sem mig vantar ...
Grínlaust..... er þetta kannski hlutur sem keyptur var í IKEA, ég bara verð að eignast svona handa stelpunum mínum
Skemmtið ykkur konunglega með gestunum & hafið það gott um helgina
Dagbjört Pálsdóttir, 19.8.2008 kl. 12:22
Það passar Dagga mín hillurnar eru úr IKEA eins flesta annað hér. Þú ættir bara að sjá í nærfataskúffurnar okkar!
Kv. P
Pálmi (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 13:14
jebb bíð spennt eftir að sjá þær næst
Haldið áfram að vera svona dugleg á myndavélina, hefði nú viljað sjá svipinn á Birgittu þegar hún sá rottuna, það hefði verið snilld 
Dagbjört Pálsdóttir, 19.8.2008 kl. 16:24
flottar myndir, væru enn betri ef þær væru allar í fókus
Kjartan (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 21:50
Hún Dagmar er kkert ryðguð hún er bara svona brúnbronslituð
Egill (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 08:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.